Gettu Betur dómarinn, Steinþór Helgi Arnsteinsson og fimleikastjarnan Glódís Guðgeirsdóttir hafa sett íbúð sína í Vesturbænum á sölu. Steinþór greindi frá þessu á Twitter í dag.
„Hefur ykkur dreymt um að búa í himnaríki? Well, þá getið þið látið þann draum verða að veruleika, því ég, Einsi og glodisgud erum að selja íbúðina okkar,“ segir Steinþór og bætir við því að stærsti plúsinn verði að þau verði nágrannar þar sem þau séu sjálf að flytja í næsta stigagang.
Íbúðin er ansi snotur en í lýsingu á Fasteignavef Vísis segir meðal annars: „Sérlega rúmgóð og glæsileg 93 fermetra tveggja herbergja íbúð á 1.hæð í þessu vandaða og glæsilega húsi á besta stað í Vesturbænum.“
Hefur ykkur dreymt um að búa í himnaríki? Well, þá getið þið látið þann draum verða að veruleika, því ég, Einsi og @glodisgud erum að selja íbúðina okkar. Stærsti plúsinn er að við erum bara að flytja í næsta stigagang svo að við verðum nágrannar…https://t.co/hXo9B2BzGo pic.twitter.com/zfwitdT4VK
— Steinþór Helgi (@StationHelgi) October 10, 2018