15 manns í bílslysi í Bisk­upstung­um

Viðbragðsaðilar á Suðurlandi eru nú á leið á vettvang umferðarslyss á Biskupstungnabraut við Myrkholt. 15 einstaklingar eru sagðir aðilar að slysinu skv. fyrstu tilkynningu og eru fjórir taldir slasaðir, en þó ekki alvarlega. Læknir er á vettvangi og að auki er aðstoð frá nærliggjandi stöðum að berast á vettvang. Ljóst er að verkefni þetta mun taka einhverja stund í vinnslu og verða frekari upplýsingar veittar þegar þær liggja fyrir. Þetta kemur fram á facebook síðu Lögreglunnar á Suðurlandi.

Auglýsing

læk

Instagram