70 ára afmælistónleikar Björgvins Halldórssonar

Björgvin Halldórsson er einn ástsælasti tónlistamaður okkar og hefur á sínum langa ferli átt stóran þátt í að móta íslenska dægurtónlist. Björgvin fagnar 70 ára afmæli 16. apríl næstkomandi og heldur upp á daginn með stórtónleikum heima í stofu hjá þér, í beinni frá Borgarleikhúsinu á sjálfum afmælisdeginum.

Ljóst er að Björgvin á skrautlegan og sigursælan feril að baki, feril sem hefur snert ótal marga, ekki bara á Íslandi heldur víða um lönd. Á afmælistónleikum hans 16. apríl mun hann rifja upp ferilinn í tali, tónlist og myndum, dyggilega studdur af sérvalinni hljómsveit, bakröddum og sérstökum gestum.

Um er að ræða streymis og „pay per view“ tónleika, sem þýðir að áhorfendur hvar sem er á Íslandi og um allan heim geta notið tónleikanna, eins og þeim hentar, þar sem þeim hentar.

Sérstakt forsöluverð er aðeins 3.400 kr og aðeins þarf að kaupa einn miða fyrir hvert heimili.

Nánar verður tilkynnt innan skamms um hvaða tónlistarfólk kemur fram með Björgvini á tónleikunum sem og hvenær miðasala hefst.

Sjá nánar um viðburðinn hér

Auglýsing

læk

Instagram