today-is-a-good-day

Against the Ice – Frumsýnd 2.mars á Netflix – Fyrsta sýnishorn!

Entertainment Weekly birti í gær fyrsta sýnishorn úr kvikmyndinni Against the Ice sem Baltasar Kormákur og RVK Studios framleiða en hún verður frumsýnd 2.mars á Netflix.

Baltasar Kormákur og RVK Studios framleiddu myndina fyrir Netflix í samstarfi við danska leikarann Nikolaj Coster-Waldau (Game of Thrones) og var hún að stærstum hluta unnin hér á landi. Myndin hefur nú verið valin inn á kvikmyndahátíðina í Berlín, sem fram fer í febrúar, og verður frumsýnd þar í í flokknum Berlinale Special – Gala Screening.

 Against the Ice er byggð á sannsögulegum atburðum; ótrúlegri þrekraun tveggja pólfara sem urðu innlyksa á Grænlandi um langt skeið snemma á 20.öldinni. Með aðalhlutverk fara Nikolaj Coster-Waldau og Joe Cole (Peaky Blinders, Gangs of London) og með önnur hlutverk fara m.a. Charles Dance (Game of Thrones), Heiða Rún Sigurðardóttir (Heida Reed) og Gísli Örn Garðarsson.

Auglýsing

læk

Instagram