Andrea Bocelli tónleikum frestað til 2021

Tónleikarnir með Andrea Bocelli sem áttu að fara fram 3. október í Kórnum hafa verið færðir til laugardagsins 10. apríl 2021, vegna útbreiðslu COVID-19 vírusins og afleiðinga hans.

Allir miðar gilda áfram á tónleikana 10. apríl og það þarf ekki að sækja nýja miða. Ef þessi nýja dagsetning hentar ekki þá eiga miðahafar rétt á fullri endurgreiðslu. Til þess að fá endurgreitt þarf að fara fram á það við miðasölu með því að senda tölvupóst á info@tix.is innan 14 daga, eða fyrir 23. september.

,,Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þessi breyting kann að valda,“ segir í tilkynningu frá Senu.

Auglýsing

læk

Instagram