Banaslys við Stigá

Ökumaður bifhjóls, karlmaður á fimmtugsaldri, lést þegar hann missti stjórn á hjóli sínu á þjóðvegi 1 skammt vestan Stigár í Austur Skaftafellssýslu í gær. Verið er að rannsaka tildrög slyssins en maðurinn virðist hafa fallið og runnið eftir götunni í veg fyrir bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Endurlífgunartilraunir á vettvangi báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn þar.

Tæknideild lögreglu höfuðborgarsvæðisns kom á vettvang ásamt fulltrúa Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Vinnu á vettvangi lauk um kl. 19:00.

 

Auglýsing

læk

Instagram