Echan Deravy gekk berfættur þvert yfir Ísland og aftur tilbaka

Í heimildarmyndinni Jarðtengdur fáum við að kynnast Echan Deravy sem gengur berfættur þvert yfir Ísland og aftur tilbaka í þeim tilgangi að sýna fólki fram á mikilvægi jarðtengingar.

Við kynnumst lífi hans í Japan og fylgjum honum frá Þingvöllum norður Kjöl til Skagafjarðar. Þaðan fylgjum við honum suður Sprengisand og Fjallabaksleið til Víkur í Mýrdal. Leikstjóri: Gunnar Sigurðsson. Handrit: Steingrímur Jón Þórðarson og Gunnar Sigurðsson.

Fyrri hlutinn var sýndur á Rúv í kvöld og seinni hlutinn verður á dagskrá á sunnudaginn eftir viku.

Auglýsing

læk

Instagram