today-is-a-good-day

„Ég hugsaði: Maðurinn er bara hálfviti“

Ólafur Stefánsson, einn þekktasti handboltamaður Íslandssögunnar, er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Ólafur, sem er einn besti handboltamaður allra tíma, ræðir líka í þættinum um mikilvægi þess að hafa hugrekki til að elta drauma sína og þora að skoða lífið.

„Lífið er stundum eins og í Hobbitanum, þegar Gandálfur bankar. Þú ert með allt til alls, brauð og bjór og allt settlað og svo koma allt í einu einhverjir dvergar og segja þeir séu að fara í ævintýri og þú eigir að koma með. Af hverju ætti maður að fara með í ævintýri þegar maður hefur allt, makinn er þokkalegur og allt í fínu. Þú getur bara farið á KFC og verið heima. En það er kannski tálsýn okkar að við teljum okkur vita allt en við reiknum ekki með að þegar þú ert 19 ára slítur þú krossband, þegar þú ert 22 missir þú afa þinn sem þér þótti vænst um af öllum, þegar þú ert 25 ára, þá kemur Covid og svo framvegis…..Við erum með kerfi sem er þannig að til þess að koma í veg fyrir einhvern skaða hjá þér er helsta leiðin að byggja kastala í kringum þig, svo að þú lendir ekki í neinu. En ef þú ofverndar einhvern of mikið fyrir heiminum mun það koma í bakið á viðkomandi. Lífið mun alltaf koma með óvænta hluti.“

Í þættinum ræða Ólafur einnig um það hvort hugsanlega gæti verið betra að byrja að æfa börn meira fyrir því sem mun gerast í lífinu með því að setja þau í eins konar flughermi sem reynir á þau í vernduðum aðstæðum.

„Í augnablikinu gegnum allan okkar grunnskóla og menntaskóla erum við eiginlega með núll hermi en leggjum alla áherslu á upplýsingar. Ég held við þurfum að fara að prófa okkur meira áfram með að setja meira af aðstæðum sem kunna að koma upp í lífinu inn í skólana. En þegar við förum að skoða þessa hluti meira inn í menntakerfinu og gera tilraunir, þá verðum við líka að vera með foreldra sem skilja hvað er í gangi og hafa upplifað hluti. Eðlilega er fyrsta viðbragð foreldra alltaf að vernda barnið sitt en við þurfum að fara að brjóta hlutina meira upp.“

Í þættinum ræðir Ólafur Stefánsson meðal annars um vin sinn, körfuboltaþjálfarann umdeilda, Brynjar Karl Sigurðsson.

„Binni er bara ,,Navy Seal“ gaur. Hann bauð mér einu sinni upp í sumarbústað, korteri fyrir Ólympíuleikana í London. Ég hef aldrei verið í eins góðu formi. Svo segir hann: „Eigum við ekki að henda okkur í fjallgöngu?“. Svo byrjar hann í smá keppni og segir: ,,Gaur, eigum við ekki aðeins að flýta okkur?“ og ég svara bara játandi og eins og ég segi, var í formi lífs míns. Ég fer að reyna að halda í við hann en hann bara skilur mig eftir. Ég neitaði að trúa því að þetta væri að gerast, ég á leiðinni á stórmót og hann skildi mig bara eftir. Þetta var óþægilegur sannleikur fyrir mig og sama gerði hann þegar ég var að byrja með fyrirtæki. Við fórum saman á Þingvelli og hann hraunaði yfir mig og sýndi mér að ég væri bara í ,,LaLa-landi“ með þessar hugmyndir mínar. Fyrsta varnarviðbragðið hjá manni er auðvitað að hugsa bara að maðurinn sé hálfviti og ég fór heim. Við ætluðum að gista saman nokkrar nætur en ég þoldi bara einn sólarhring. Eftir á að hyggja var allt rétt sem hann sagði,“ segir Ólafur, sem skilur vel að bíómyndin ,,Hækkum Rána“ hafi valdið miklu umtali á Íslandi.

,,Við erum ekki með West-Point á Íslandi að berjast við Rússa eða Kínverja allan daginn, þannig að við þekkjum ekki alveg að eiga við fólk sem er með ,,Navy-Seal“ nálganir á hlutina eins og Brynjar. Þannig að auðvitað bregður fólki að sjá svona mann þjálfa ungar stelpur. En Binni ver sig sjálfur og er alls ekki að mæla með að aðrir þjálfi eins og hann. En það er fólk eins og hann sem fær okkur til að hugsa og gagnrýna hlutina og velta upp einhverju sem hefur kannski bara legið í einhverjum drullupolli í lengri tíma.“

Í þættinum ræða hann og Sölvi um mikilvægi þess að elta draumana, hlutverk kynjanna í nútímanum, ferðalög Ólafs í lífinu og margt margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan:

Auglýsing

læk

Instagram