Einn með fyrsta vinning og hlaut rúmar 703 milljónir!

Miðaeigandi í Noregi var einn með 1. vinning í Víkingalottóinu í gærkvöldi og fær hann í sinn hlut rúmlega 703 milljónir.

Tveir Finnar skiptu öðrum vinningi á milli sín og hlýtur hvor rúmlega 8 milljónir króna. Fjórir voru með 4 Jókertölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Hagkaupum á Akureyri, Lottó-appinu, á heimasíðunni lotto.is og einn er í áskrift.

Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 5.864

Auglýsing

læk

Instagram