Einn með hinn al-íslenska 3. vinning og hlýtur tæpar 13 milljónir

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út þessa vikuna í Víkingalottó en heppinn spilari var einn með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann rétt tæpar 13 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Vitanum, Laugavegi 62 í Reykjavík.

Fjórir voru fjórar réttar Jókertölur í réttri röð og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Tveir miðanna eru í áskrift, einn var keyptur í Appinu og einn á heimasíðunni lotto.is.

Auglýsing

læk

Instagram