Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í nótt

Eldur kom upp í íbúð í þriggja hæða fjölbýlishúsi í Hafnarfirði um klukkan tvö í nótt og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu sent á vettvang.

Þegar komið var á staðinn var íbúi íbúðarinnar kominn út en íbúar á hæðinni fyrir ofan, móðir og tvö börn hennar, biðu björgunar úti á svölum. Mikill eldur logaði í eldhúsi íbúðarinnar og var reykur kominn um allt húsið.

Að sögn varðstjóra slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins gekk greiðlega að slökkva eldinn en miklar skemmdir urðu í húsinu af völdum elds og reyks. Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar.

Vísir greindi frá þessu.

Auglýsing

læk

Instagram