today-is-a-good-day

Fá styrk úr Úrbótasjóði tónleikastaða í Reykjavík

Á ráðsfundi Menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur í gær var samþykkt tillaga þess efnis að tólf tónleikastaðir og menningarhús, er sinna lifandi tónlistarflutningi, hljóti styrk úr Úrbótasjóði tónleikastaða í Reykjavík. Greint er frá þessu á albumm.is

Umsóknarfrestur var til 31. maí sl. en alls bárust 14 umsóknir í sjóðinn frá 13 tónleikastöðum og menningarhúsum. Heildarupphæð sem sótt var um nam tæpum 18 milljónum króna. Faghópur skipaður einum fulltrúa sem Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð skipaði og tveimur fulltrúum sem STEF og FÍH skipuðu saman fór yfir umsóknirnar og lagði tillögur um úthlutun fyrir Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð sem var samþykkt.

Staðirnir sem hljóta styrki eru þessir:

  • Gaukurinn
  •  Tónlistarþróunarmiðstöðin (TÞM) úti á Granda ( með tónleikastaðinn Hellinn)
  • Gamla bíó
  •  Mengi
  • R6013, sem rekinn er í kjallara húss á Ingólfsstræti
  • Stelpur rokka!, sem reka áfengislausan stað með áherslu á tónleikahald fyrir ungmenni
  • Húrra
  • Prikið
  • Skuggabaldur
  • Space Odyssey
  • Post-húsið á Skeljanesi
  • Stereo
Auglýsing

læk

Instagram