Færa Kótelettuna til um einn mánuð

Fjölskylduhátíðin Kótelettan verður haldin í 11. sinn á Selfossi í sumar.

Upphaflega átti hátíðin að fara fram dagana 11. til 13. júní en hefur nú verið færð til um einn mánuð. Há­tíðin verður því haldin 9. til 11. júlí.

„Að vanda verður öllu til tjaldað enda finnum við fyrir mikilli eftir­væntingu í sam­fé­laginu,” segir Einar Björns­son, fram­kvæmdar­stjóri há­tíðarinnar, í til­kynningu.

Um er að ræða eina stærstu grill- og tónlistarveislu á Íslandi þar þar sem enginn ætti að láta sig vanta. Miða­sala hefst í byrjun júní inn á www.kot­elettan.is en þar má einnig nálgast nánari upp­lýsingar og dag­skrá há­tíðarinnar í ár.

Auglýsing

læk

Instagram