Fiskikóngurinn og Sveppi í Sápu kvöldsins

Sápan eru nýir íslenskir grín sápuóperu þættir á Stöð 2 þar sem þjóðþekktir Íslendingar mæta í gestahlutverkum og leika á móti aðalpersónum þáttanna.

Leikarar eru meðvitaðir um að þeir séu að leika í sápuþætti þar sem allt er leyfilegt. Í aðalhlutverkum eru Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Aron Már Ólafsson og Arnar Jónsson.

Annar þáttur af Sápunni er sýndur kl.19:10 á Stöð2 í kvöld – gestir þáttarins eru: Auddi, Sveppi, Katrín Halldóra, Bjössi í World Class, Hrefna Sætran, Salka Sól, Fiskikóngurinn og Sveinn Geirsson.

 

 

Auglýsing

læk

Instagram