today-is-a-good-day

Guðjón Ketilsson er myndlistarmaður ársins

Íslensku myndlistarverðlaunin voru veitt afhent við hátíðlega athöfn í Iðnó í kvöld.

Guðjón Ketilsson var þar valinn myndlistarmaður ársins fyrir sýninguna Teikn, í Listasafni Reykjanesbæjar. Þetta kemur fram á vef Rúv

Eftirfarandi myndlistarmenn voru tilnefndir sem Myndlistarmaður ársins 2020:

  • Anna Guðjónsdóttir fyrir Hluti í stað heildar í Listasafni Reykjavíkur.
  • Guðjón Ketilsson fyrir Teikn í Listasafni Reykjanesbæjar.
  • Hildigunnur Birgisdóttir fyrir Universal Sugar í Listasafni ASÍ.
  • Ragnar Kjartansson fyrir Fígúrur í landslagi í i8.

Í umsögn dómnefndar segir:

Guðjón Ketilsson (f. 1956) hlýtur Myndlistarverðlaun ársins 2010 fyrir sýninguna Teikn í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýningin var samsett úr átta verkum sem tengdust með markvissri framsetningu í sýningarrýminu og fjölluðu öll með einum eða öðrum hætti um tákn, táknmerkingu og „lestur“, í víðum skilningi.

Á sýningunni mátti sjá ýmiskonar þemu og hugmyndir sem hafa verið áberandi í verkum Guðjóns á síðustu árum, sett fram í nýjum verkum á einstaklega áhrifaríkan hátt. Sýningin var rökrétt framhald af höfundarverki listamannsins en jafnframt áhrifamikil úrvinnsla og viðbót við það, og vísar leiðina inn í nýja og spennandi merkingarheima. Guðjón Ketilsson er því vel að verðlaununum kominn að mati dómnefndar.

 

Auglýsing

læk

Instagram