Íslensku myndlistarverðlaunin 2021

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2021.

Verðlaunin verða veitt í fjórða skipti í febrúar 2021 og hægt er að tilnefna til miðnættis 7. janúar. Myndlistarráð stendur að verðlaununum sem hafa þann tilgang að vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar á Íslandi. Verðlaununum er ætlað að stuðla að kynningu á íslenskum myndlistarmönnum og styðja við myndsköpun þeirra.

Tilnefndu hér til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2021

Veitt eru verðlaun í tveimur flokkum: Myndlistarmaður ársins og Hvatningarverðlaun ársins.

Aðalverðlaun, 1 milljón króna, eru veitt íslenskum myndlistarmanni eða myndlistarmanni með búsetu á Íslandi sem þykir hafa skarað framúr með nýlegum verkum og sýningu á Íslandi á síðastliðnu myndlistarári, 2020. Hvatningarverðlaun, 500 þúsund krónur, verða veitt starfandi myndlistarmanni sem lokið hefur námi á síðastliðnum 5 árum og sýnt hefur opinberlega innan þess tíma.

Auglýsing

læk

Instagram