Heppinn áskrifandi hlýtur rúmar 6,7 milljónir

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út að þessu sinni í Vikinglottó, en heppinn áskrifandi var einn með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann rúmar 6.7 milljónir í sinn hlut.

Sex voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Þrír miðanna eru í áskrift, og hinir miðarnir voru keyptir á eftirtöldum stöðum; Vestur restaurant á Aðalstræti 110 á Patreksfirði, Euro Market á Smiðjuvegi 2 í Kópavogi og Jolla á Helluhrauni 1 í Hafnarfirði.

Auglýsing

læk

Instagram