Hjón á Selfossi eru 104 milljónum króna ríkari

Hjón á Selfossi höfðu heldur betur heppnina með sér eftir að hafa keypt sér lottómiða í Krambúðinni á Selfossi en miðinn góði færði hjónunum vinning upp á rúmar 104 milljónir. Lottópotturinn var hæsti sexfaldi vinningur hingað til og fór hann óskiptur á einn miða.

Maðurinn hafði séð í fjölmiðlum að vinningshafinn frá öðrum degi jóla væri enn ekki búinn að gefa sig fram og hafði hann orð á því við konu sína að það væri nú óskandi að þessi stóri vinningur færi á góðan stað. Aldrei grunaði hann að konan sín lumaði á miðanum góða í veskinu sínu.

Hjónin voru ekki almennilega búin að ná áttum með þessar gleðifréttir og má segja að þau hafi enn verið hálf skjálfandi þegar þau komu með vinningsmiðann á skrifstofu Íslenskrar getspár. Með í för var barnabarn þeirra hjóna og sögðu þau að það fyrsta sem þau ætluðu að gera væri að fara með snáðann í búð þar sem hann mætti velja sér eitthvað fallegt. Ekki stóð á svarinu hjá snáðanum:  „Eitthvað Liverpool tengt,” sagði hann alsæll. Aðrar ráðstafanir á vinningnum voru þau ekki enn farin að huga að.

„Það geta greinilega allir dottið í lukkupottinn,” sagði vinningshafinn að lokum, er þau kvöddu höfuðstöðvar Íslenskrar getspár í Laugardalnum brosandi út að eyrum enda allt í einu rúmum 104 milljón krónum ríkari.

Auglýsing

læk

Instagram