Hljóðbókaverðlaunin Storytel Awards ná nýjum hæðum á Norðurlöndunum

Afhending íslensku hljóðbókaverðlaunanna, Storytel Awards, fer fram við hátíðlega athöfn í Hörpu þann 24. mars næstkomandi. Hátt í 6.000 atkvæði bárust frá íslenskum hljóðbókaunnendum í ár.  Á Norðurlöndunum öllum tóku samtals 130.000 hlustendur Storytel þátt í atkvæðagreiðslu á bestu hljóðbókum síðasta árs og hafa atkvæðin aldrei verið fleiri í sögu Storytel Awards. Tvöfalt fleiri atkvæði bárust í ár en í fyrra.

Storytel Awards voru fyrst afhent í Svíþjóð árið 2015 en frá þeim tíma hafa vinsældir hljóðbókarinnar aukist gríðarlega og er áhugi á verðlaununum hvergi meiri en á Norðurlöndunum. Storytel Awards er stærsta norræna verðlaunahátíðin sem haldin er til heiðurs hljóðbókaforminu.

Jonas Tellander, stofnandi og forstjóri Storytel, er að vonum ánægður með framgang Storytel Awards og  hann er þakklátur rithöfundum, útgefendum og unnendum hljóðbóka fyrir þennan mikla áhuga á verðlaunum. Storytel Awards sé virðingarvottur til rithöfunda og lesara hinna fjölmörgu áhrifamiklu verka sem hafi stuðlað að einstökum framgangi hljóðbókarinnar. Hljóðbókin hafi vaxandi áhrif á líf almennings og dægurmenningu almennt.

Fjöldi atkvæða: (námundaðar að næsta hundraði)

Svíþjóð: 71.000 (2020: 30.000)

Finnland: 14.800 (2020: 11.800)

Danmörk: 36.500 (2020: 15.600)

Ísland: 5.800 (2020: 3.800)

 

Storytel Awards verðlaunahátíðarnar 2021 verða haldnar sem hér segir:

Svíþjóð: 29. apríl

Finnland 25. mars

Danmörk: Í apríl

Ísland: 24. mars

Auglýsing

læk

Instagram