Iceland Airwaves kynnnir: Live from Reykjavík

ICELAND AIRWAVES KYNNIR STAFRÆNU TÓNLISTARHÁTÍÐINA
LIVE FROM REYKJAVÍK 13. OG 14. NÓVEMBER 2020

 

Iceland Airwaves boðar til stafrænu tónlistarhátíðarinnar Live from Reykjavík dagana 13. og 14. nóvember, í samstarfi við Íslandsstofu, RÚV, Reykjavíkurborg, Icelandair, Einstök og Landsbankann. Á hátíðinni kemur fram blanda af íslensku tónlistarfólki sem vakið hefur athygli utan landssteinanna, ásamt yngri vonarstjörnum íslenskrar tónlistar.

Tónleikar hátíðarinnar verða aðgengilegir á miðlum RÚV, en einnig verður seldur aðgangur að streymi frá hátíðinni um allan heim í gegnum vefinn Dice.fm. Samhliða hátíðinni mun ÚTÓN standa fyrir stafrænni ráðstefnu fyrir áhrifafólk úr tónlistargeiranum til að kynna íslenska tónlist og listamenn.

Á hátíðinni koma fram alls 16 atriði:
Ásgeir
Auður
Bríet
Cell7
Daði Freyr
Emilían Torrini & Friends
GDRN
Hatari
Hjaltalín
Júníus Meyvant
Kælan Mikla
Mammút
Mugison
Of Monsters Ansd Men
Ólafur Arnalds
Vök

Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á svo viðamikla tónlistardagskrá frá Íslandi í gegnum netið um allan heim. Tilgangurinn er að styðja við sköpun og starf íslenskra tónlistarmanna, búa til reynslu og þekkingu í streymi sem nýtast mun íslenska tónlistargeiranum til framtíðar og efla markaðs- og kynningarstarf íslenskrar tónlistar á erlendum vettvangi.

„Nú er allt okkar fremsta tónlistarfólk á landinu á sama tíma en ekki á tónleikaferðalagi um heiminn. Það er algjört einsdæmi að geta stillt upp svo öflugri dagskrá á Íslandi og það er tækifæri sem við vildum ekki láta okkur renna úr greipum,“ segir Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves.

„Þetta er jafnframt gott tækifæri til þess að styðja við tónlistarfólkið hér heima. Hér er er verið að skapa fjölmörg störf í geira sem hefur verið svo til lamaður síðan í mars og 100% af kostnaði og tekjum renna inn í hann á einn eða annan hátt. Við trúum því að þessi dagskrá og þetta framtak muni vekja heimsathygli og búa til ómetanlega þekkingu og reynslu innan geirans,“ segir Ísleifur.

Auglýsing

læk

Instagram