Íslandsmeistaramótið í skeggvexti

Íslandsmeistaramótið í skeggvexti verður haldið í fyrsta skiptið á Gauknum þann 28. mars.

„Mér var bent á að líkja þessu ekki saman við hundasýningu, en þetta er samt pínu svoleiðis,“ segir Jón Baldur Bogason, yfirumsjónarmaður keppninnar, og brosir breitt. „Keppendur stíga á sviðið og ganga fram hjá dómurunum. Það er meira gaman en alvara að baki þessu. Þetta snýst um að koma saman, skemmta sér og safna pening fyrir gott málefni,“ segir Jón Baldur í samtali við Fréttablaðið

Ágóðinn rennur til Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur.

Keppt verður í fjórum flokkum, það er í fullu skeggi, yfirvaraskeggi, hálfskeggi og gerviskeggi.

„Í síðustu keppni sem ég fór á í Ameríku vann kona með skegg sem gert var úr tönnum,“ segir Jón Baldur. „Ég þorði ekki að spyrja hvort þetta væru alvöru mennskar tennur.“

Í dómnefnd situr úrvalslið sérfræðinga, Árni og Auður hjá Hárbeitt, Ólafur Örn Ólafsson, stjörnukokkur og dansari, Siggeir Fannar Ævarsson, sagnfræðingur og sérfræðingur í íslenskri skeggtískusögu, og Katla Einarsdóttir förðunarfræðingur. Verðlaunin verða skeggtengdar vörur.

Hægt er að skrá sig í keppnina á síðunni beard.is og gjaldið er 1.500 krónur.

Auglýsing

læk

Instagram