Jólagestir Björgvins | Efnisskrá og textar nú aðgengilegir

Það styttist í stóru stundina: Jólagestir Björgvins eru á morgun!

Jólagestir Björgvins fara fram á morgun og nú fer hver að vera síðastur að kaupa sér miða. Ef þú ert komin/n með miða er lang best að virkja kóðann strax, þá geturðu verið viss um að þetta gangi smurt fyrir sig á laugardaginn.

Þú getur hitað upp frá kl 19.30 með því að kíkja með baksviðs í Borgarleikhúsið en útsendingin hefst þá. Tónleikarnir hefjast svo stundvíslega kl. 20:00.

Efnisskráin er komin í loftið, þannig þið getið kynnt ykkur hvað er í vændum. Einnig hafa allir söngtextarnir verið settit á netið, svo þið getið raulað með!

Athugið; ef þið viljið ekki vita fyrirfram hvaða lög eru sungin, eða hver syngur hvað – ekki smella á tenglana hér að neðan!

Auglýsing

læk

Instagram