Jólagestir Björgvins eru á laugardaginn – Forsöluverði lýkur á föstudag!

Forsöluverði á streymismiðum á Jólagesti Björgvins lýkur kl. 18:00 föstudaginn 17. desember. Þá hækkar verðið um 1.000 kr. upp í 5.990 kr. Ef það hentar þér ekki að mæta í Höllina og upplifa tónleikana á staðnum, þá geturðu tryggt þér streymismiða núna á lægra verði og horft á tónleikana heima í stofu.

Kaupa miða hér

Krummi Björgvinsson verður sérstakur gestur á Jólagestum Björgvins og mun syngja fyrir okkur fallega jólatónlist í Laugardalshöllinni með föður sínum og systur. Krummi er landsmönnum vel þekktur enda hefur hann verið á sjónarsviðinu í nær tvo áratugi og hefur heillað okkur með fjölbreyttum útgáfum í rokk og kántrý stíl.

Heimilstónar sigruðu Jólalagakeppni Rásar 2 í ár með lagið Anda inn. Hljómsveitin Heimilistónar er skipuð þeim Vigdísi Gunnarsdóttur, Elvu Ósk Ólafsdóttur, Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur og Ólafíu Hrönn Jónsdóttur. Katla Margrét er höfundur lags og texta, sem innblásin eru af jógaiðkun og öndunaræfingum.

Boðskapur lagsins er einkar viðeigandi þegar jólastreitan tekur yfir og náði hann vel til dómnefndar. Svo virðist sem hann hafi einnig snert þá hlustendur sem tóku þátt í kosningunni, enda hlaut lagið meirihluta atkvæða.

Hlustaðu á lagið hér

Auglýsing

læk

Instagram