Leynilöggan slær met / Tekjuhæsta íslenska frumsýningarhelgi frá upphafi

Leynilöggan var frumsýnd með miklum látum sl. miðvikudag. Íslenskir kvikmyndahúsagestir tóku henni fagnandi og gerðu hana að tekjuhæstu frumsýningu á íslenskri mynd frá upphafi sem er magnaður árangur.

Leynilöggan slær fimmtán ára gamalt frumsýningar met Mýrinnar (sjá topp 5 listann hér að neðan).  Leynilöggu miðasölu tekjurnar voru 15,941,412kr. sem setur hana á topp íslenskra kvikmynda frumsýninga og fimm daga tekjurnar 23,683,667kr. sem toppar sömuleiðis fimm daga frumsýningarhelga tekju-metið.

 
Þetta er svo sannarlega einstakur árangur og ljóst að myndin mun gera harða atlögu að fleiri metum á næstu vikum.

Auglýsing

læk

Instagram