Lögreglan var­ar við nets­vindli

Lögreglan biður fólk um að fara afskaplega varlega með tilkynningar sem það er að fá í skeytum. Þetta kemur fram á Facebook síðu Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.

„Farið afskaplega varlega með tilkynningar sem þið eruð að fá, síðustu daga höfum við fengið mikið af tilkynningum um að verið sé að senda svindl í nafni Póstsins, DHL, Netflix og Útilíf. Athugið að þetta er það sem við vitum af núna en listinn er ekki tæmandi. Það er samstarf margra aðila að vinna í því að loka á þessa tengla en við náum ekki að loka á allt.“

„Fólk verður að sýna aðgát þegar það fær svona tengla. Í öllum ofan töldum málum hefur verið hægt að sjá að þetta er svindl með að setja bendilinn yfir slóðina og þá kemur eitthvað skrýtið.“

Lögreglan þiggur allar ábendingar um svindl á abendingar@lrh.is og cybercrime@lrh.is vegna svona brota.

VARÚÐ NETSVINDL

Farið afskaplega varlega með tilkynningar sem þið eruð að fá í skeytum, síðustu daga er verið að senda…

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Föstudagur, 11. desember 2020

Auglýsing

læk

Instagram