Maður lést í umferðarslysi

Ökumaður fólksbifreiðarinnar sem fór útaf Norðausturvegi 85 sunnan Kópaskers í gærkvöldi var látinn þegar að var komið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Maðurinn var einn á ferð í bíl sínum. Hinn látni var um fertugt, af erlendum uppruna en búsettur og starfandi á Íslandi.

Auglýsing

læk

Instagram