Matarveisla á Laugaveginum

Á laugardaginn ætla Vínstúkan tíu sopar, Public house og Súmac að standa saman fyrir útiveislu í tilefni af sumarsólstöðum.

Í fyrsta sinn í sögunni verður sett upp hvítdúkað langborð eftir endilöngum Laugaveginum fyrir fólk að setjast við og njóta matarins.

Fyrri part dagsins veður grillstemning og götumatur en um kvöldið alvöru veisla með mat frá kokkunum á Súmac, Public house og víni frá Vínstúkunni Tíu sopum.

,,Við erum búin að panta gott veður, en það er þó alltaf góð hugmynd að klæða sig eftir veðri, stuttbuxur eða regngalli,” segir á Facebook síðu viðburðarins.

Partýið stendur yfir frá klukkan 14:00 – 20:00

Auglýsing

læk

Instagram