Nafn mannsins sem lést í Vopnafirði

Lögreglan hefur borið kennsl á líkamsleifar er fundust í Vopnafirði 1. apríl sl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
„Þann 1. apríl síðastliðinn fundust líkamsleifar í Vopnafirði er rekið höfðu þar á land. Í samráði við og með aðkomu kennslanefndar ríkislögreglustjóra voru þær sendar til réttarlæknisfræðilegrar rannsóknar á Landspítala og til DNA greiningar í Svíþjóð. Niðurstaða DNA greiningar liggur fyrir, “ segir í tilkynningunni.
„Um er að ræða líkamsleifar skipverja er féll 18. maí í fyrra fyrir borð af fiskiskipinu Erling KE-140 er það var á leið til hafnar í Vopnafirði. Í samráði við ættingja er nafn hins látna tilgreint hér en hann hét Axel Jósefsson Zarioh og var fæddur árið 2001.“
Auglýsing

læk

Instagram