today-is-a-good-day

Norræn kvikmyndaveisla í Bíó Paradís

Bíó Paradís mun sýna allar fimm tilnefndu kvikmyndirnar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár og bjóða upp á Norræna kvikmyndaveislu dagana 15. – 20. október 2019. Sjá dagskrá hér.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta skipti árið 2002 á hálfrar aldar afmæli Norðurlandaráðs, en síðan kvikmyndaverðlaunin festust í sessi árið 2005 hafa þau verið veitt árlega um leið og önnur verðlaun ráðsins. Í tengslum við kvikmyndaverðlaunin stendur Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn (Nordisk Film og TV Fond) fyrir sýningum á tilnefndum myndum í samstarfi við kvikmyndahús á Norðurlöndunum, af því tilefni mun Bíó Paradís sýna allar þær fimm tilnefndu myndir og bjóða upp á Norræna kvikmyndaveislu dagana 15. – 20. október.

 

Auglýsing

læk

Instagram