Ný stikla úr James Bond kvikmyndinni No Time To Die

Nýjasta Bond kvikmyndin, No Time To Die, er sú 25. í röðinni og er þetta í sjötta og jafnframt síðast skipti sem leikarinn Daniel Craig fer með hlutverk James Bond.

Leikkonan Lashana Lynch fer með hlutverk útsendara bresku krúnunnar, 007, og fleiri leikarar sem koma fram í kvikmyndinni eru Rami Malek, Ralph Fiennes, Christoph Waltz, Ana de Armas og Naomie Harris.

Upphaflega stóð til að frumsýna No Time To Die í apríl síðastliðinn en vegna kórónuveirufaraldursins var því frestað. Nú styttist í að kvikmyndin verði frumsýnd, í nóvember, og af því tilefni hefur verið gefið út nýtt sýnishorn sem sjá má hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram