Rúrik Gíslason, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, keppir í þýsku útgáfunni af Let´s Dance. Þættirnir eru sýndir á RTL-sjónvarpsstöðinni og hófst þáttaröðin 26. febrúar.
Dansfélagi Rúriks er atvinnudansarinn Renata Lusin og eru þau að slá í gegn í þáttunum. Þau hlutu 29 stig síðasta föstudagskvöld, þegar þau dönsuðu Quickstep, og eru þau með hæsta meðaltal stiga í keppninni hingað til.
Frammistöðu Rúriks og Renötu í síðasta þætti má sjá hér.