Rúrik með frábæra frammistöðu í Let’s dance – MYNDBAND –

Rúrik Gíslason, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, keppir í þýsku útgáfunni af Let´s Dance. Þættirnir eru sýndir á RTL-sjónvarpsstöðinni og hófst þáttaröðin 26. febrúar.

Dansfélagi Rúriks er atvinnudansarinn Renata Lusin og eru þau að slá í gegn í þáttunum. Í síðasta þætti dönsuðu þau Jive og fengu 10 í einkunn frá öllum þremur dómurum þáttarins.

Hér má sjá frammistöðu Rúriks og Renötu þegar þau dönsuðu Jive í síðasta þætti

Auglýsing

læk

Instagram