Sterkasta kona Íslands

Laugardaginn 15. ágúst fór keppnin Sterkasta kona Íslands fram á Akureyri.

Keppendur voru 9 talsins og keppt var í opnum flokki og undir 82 kg flokki. Keppt var í 5 greinum, loggur, réttstöðulyftu á tíma 60sek, grindarburði 160kg og 180kg, pokahleðslu 50-80 kg og steina lyftum. Dómarar voru þau Kristján Sindri Níelsson og Ingibjörg Óladóttir og fór keppnin fram við Bílaklúbb Akureyrar. Þetta kemur fram á vef eystrahorns

Lilja B. Jónsdóttir, frá Hornafirði, sigraði -82kg flokkinn og lenti í þriðja sæti í opna flokknum. Þetta var í 10 skiptið sem Lilja tekur þátt í keppninni.

Hér fyrir neðan má sjá úrslitin úr keppninni:

Opinn flokkur:

  1. Ellen Lind Ísaksdóttir 40,5
  2. Ragnheiður Ósk Jónasdóttir 38
  3. Lilja B. Jónsdóttir 32,5
  4. Veiga Dís Hansdóttir 30,5
  5. Hugrún Ýr Sigurðardóttir 30
  6. Lillý Ösp Sigurjónsdóttir 18
  7. Hulda Rós Blöndal Snorradóttir 17,5
  8. Snæfríður Birta Björgvinsdóttir 11
  9. Margrét Ársælsdóttir 7

Undir 82kg flokkur:

  1. Lilja B. Jónsdóttir 19,5
  2. Veiga Dís Hansdóttir 19
  3. Hugrún Ýr Sigurðardóttir 16,5
  4. -5. Hulda Rós Blöndal Snorradóttir 10 og Lillý Ösp Sigurjónsdóttir 10
Auglýsing

læk

Instagram