Strákarnir í Kaleo í þættinum Late Night með Seth Meyers

Í gærkvöldi komu þeir Jökull Júlíusson og Þorleifur Gaukur Davíðsson fram í þættinum Late Night með Seth Meyers.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kaleo kemur fram í þættinum og hefur hljómsveitin spilað í flestum stóru spjallþáttunum vestanhafs. Hinsvegar eru þættirnir flestir teknir upp á annan hátt þessa dagana og hafa tónlistaratriðin í þáttunum verið með óhefðbundnu sniði.

Lagið sem var flutt í gærkvöldi heitir Break My Baby og kom út fyrr á árinu. Myndbandið var tekið upp á árabát á Elliðavatni í góðu veðri á dögunum.

 

Auglýsing

læk

Instagram