Það verður ÞJÓÐHÁTÍÐ!

Ákveðið hefur verið að halda Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. 

„Eftir að Þjóðhátíð var aflýst á síðasta ári höfum við í ÍBV íþróttafélagi unnið að því að skipuleggja glæsilegustu Þjóðhátíð sem sést hefur. Áætlanir stjórnvalda hafa verið mikill byr í seglin og gleður það okkur að tilkynna að ef þær áætlanir ná fram að ganga mun Þjóðhátíð 2021 fara fram í Herjólfsdal um Verslunarmannahelgina,“ segir í tilkynningu frá ÍBV.

Miðasala mun hefjast á næstu dögum á https://dalurinn.is/

„Við hlökkum til að sjá þig í Herjólfsdal, þar sem lífið er yndislegt – á ný!“

Auglýsing

læk

Instagram