„Þetta verður í fínu lagi“

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, birtir stuttan pistil á Facebook síðu sinni þar sem hann reynir að hughreysta landann. Þar segist hann eiga í góðum samskiptum við „þríeykið“ og að þetta verði allt í fínu lagi.

„Samskipti mín við þríeykið hafa verið mjög góð og ég lít á Ölmu og Þórólf sem góða vini og frábært samstarfsfólk. Það er hins vegar ekki verkefni ÍE að skima eftir veirum. Við gerðum það meðan faraldurinn gekk yfir landið vegna þess að þess þurfi og einginn annar til þess. Nú er ástandið allt annað og ekki réttlætanlegt fyrir okkur að halda því áfram. Landspítalinn er ágætlega í stakk búinn til þess að höndla þetta. Við munum gefa honum hugbúnað sem við settum saman til þess halda utan um sýni og gögn og senda þangað fólk til þess að kenna á hann. Og þess utan ef þau lenda í vanda, eða út í mýri, þá erum við hér, atvinnumenn og konur í því að vera út í alls konar mýrum og kunnum að takast á við það og rjúkum til og hjálpum. Þetta verður í fínu lagi,“ skrifar hann að lokum.

Auglýsing

læk

Instagram