today-is-a-good-day

Þrír miðaeigendur voru með 2. vinning í Jóker

Fimm miðaeigendur skiptu með sér 2. vinningi í EuroJackpot og hlýtur hver þeirra rúmlega 54,8 milljónir króna, miðarnir voru keyptir í eftirtöldum löndum;  Danmörku, Noregi, Finnlandi, Póllandi og Þýskalandi.  Það voru einnig fimm sem skiptu með sér 3ja vinningi og fær hver þeirra 19,3 milljónir í sinn hlut.

Þeir miðar voru keyptir í þessum löndum; Danmörku, Slóveníu, Finnlandi og tveir í Þýskalandi.  Hins vegar gekk 1. vinningur ekki út og flyst upphæð hans sem nam tæpum 2 milljörðum króna yfir til næstu viku.

Enginn var með 1. vinning í Jóker en þrír miðaeigendur voru með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund kall, tveir miðanna eru í áskrift og einn var keyptur á lotto.is

Auglýsing

læk

Instagram