Tveir voru með 5 réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fá 2 milljónir króna hvor

Enginn var með allar aðaltölurnar auk stjörnutalnanna að þessu sinni í EuroJackpot og flyst vinningsupphæðin yfir á 1. vinning í næstu viku. Sjö skiptu 2. vinningi á milli sín og fær hver þeirra rúmlega 42 milljónir króna. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Svíþjóð, einn á Spáni og í Danmörku. Átta miðeigendur skiptu með sér 3. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmar 13 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Noregi, Króatíu og fimm í Þýskalandi.

Tveir voru með 5 réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fá þeir 2 milljónir króna hvor í vinning. Annar miðinn er í áskrift en hinn var keyptur í Kjörbúðinni á Seyðisfirði. Þá voru tveir sem hlutu 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hvor. Annar miðinn var keyptur á heimasíðunni lotto.is en hinn er í áskrift.

Auglýsing

læk

Instagram