Útboðsþing Samtaka iðnaðarins í beinu streymi á morgun

Útboðsþing SI sem haldið er í samstarfi við Mannvirki – félag verktaka og Félag vinnuvélaeigenda fer fram í beinu streymi á morgun föstudaginn 21. janúar kl. 13.00-15.00. Á þinginu kynna fulltrúar 11 opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því gott yfirlit yfir helstu útboð ársins. Innviðaráðherra flytur ávarp á þinginu.

Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Dagskrá

    • Setning – Árni Sigurjónsson, formaður SI
    • Ávarp – Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
    • Reykjavíkurborg – Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
    • Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir – Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
    • Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu – Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
    • Orka náttúrunnar – Óskar Friðrik Sigmarsson, forstöðumaður Stefnu og árangurs
    • Landsvirkjun – Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
    • Faxaflóahafnir – Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri
    • Vegagerðin – Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
    • Landsnet – Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
    • NLSH – Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs
    • Veitur – Katrín Karlsdóttir, leiðtogi verkefnastjóra
    • Isavia – Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri Hönnunar og framkvæmda
    • Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
Auglýsing

læk

Instagram