Vetrarhátíð – Winter Lights Festival

Vetrarhátíð var sett í kvöld klukkan 19:45 við Hallgrímskirkju með listaverkinu Sálumessa jöklanna eftir Heimir Hlöðversson.

„Jöklar heimsins eru að bráðna á ógnarhraða og ef svo heldur fram sem horfir munu allir Jöklar á Íslandi vera nánast horfnir eftir 200 ár. Sálumessajöklanna er óður til þeirra,“ segir um verkið á vef Vetrarhátíðar.

Vetrarhátíðin verður haldin dagana 6. – 9. febrúar 2020 og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samstendur af þrem meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalist ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni.

Á þriðja tug bygginga á höfuðborgarsvæðinu verða upplýstar í einkennislitum Vetrarhátíðar,  grænum og fjólubláum, auk þess sem ljóslistaverk verða á nokkrum lykilbyggingum á höfuðborgarsvæðinu; Hallgrímskirkju, Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands, Hörpu og Ráðhúsi Reykjavíkur.

Hér má kynna sér dagskrá Vetrarhátíðar nánar.

Auglýsing

læk

Instagram