Annie Mist í 2. sæti á heimsleikunum í Crossfit

Annie Mist Þórisdóttir hafnaði í öðru sæti á heimsleikunum í Crossfit sem fóru fram í Kaliforníu í Bandaríkjunum um helgina. Annie hefur tvisvar sinnum unnið keppnina, 2011 og 2012, en hún var ekki með í fyrra vegna bakmeiðsla.

Annie var ekki eini Íslendingurinn á mótinu en þau Björk Óðinsdóttir og Björgvin Karl Guðmundsson tóku einnig þátt og enduðu á meðal 30 efstu keppendanna.

Annie Mist brást í grát á blaðamennfundi eftir keppnina þar sem hún talaði um bakmeiðslin sem héldu henni frá síðustu heimsleikum.

Auglýsing

læk

Instagram