Ásgeir Trausti söng á Esjunni

Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti tróð upp á Esjunni í kvöld ásamt hljómsveit sinni. Tónleikarnir voru á vegum fjarskiptafyrirtækisins Nova.

Fjöldi fólks mætti á svæðið og stemningin var mjög góð. Meirihluti áhorfenda gekk á Esjuna en fjölmargir nýttu sér tilboð á þyrluflugi upp á fjallið. 

Þá var veðrið með besta móti, sól og blíða en kalt. Fólk klæddi sig eftir veðri þó sumir hafi verið á stuttbuxunum.

Auglýsing

læk

Instagram