Auddi Blö hélt metnaðarfyllsta búningapartí landsins: Sjáðu bestu búningana

Auðunn Blöndal býður vinum sínum árlega í eitthvert metnaðarfyllsta búningapartí landsins. Partíið í gærkvöldi var engin undantekning og voru búningarnir teknir alla leið.

Myndir úr partíinu flæddu inn á samfélagsmiðla í gærkvöldi og þær voru hver annarri betri. Nútíminn tók saman brot af því besta.

 

Auddi var Zoolander og Jón Jónsson mætti sem erkióvinurinn Hansel.

Steindi hlustaði á vandamál fólks sem dr. Phil og Sigrún kærasta hans var Beetlejuice.

Hvort er verra að vakna við hliðina á Beetlejuice eða Dr.Phil í fyrramálið? #bpblö15 A photo posted by Steindi jR (@steindijr) on

Hér má sjá Egil sem Thor (lítill hamar) og Dagbjört er Dorothy.

Thor vs. Dorothy #bpblö15

A photo posted by @dagbjortvestmann on

Ásgeir Kolbeins tók þetta alla leið sem persóna úr World War Z.

#bpblö15 Gaurinn er ætlaði að éta Brad Pitt í World War Z A photo posted by Asgeir Kolbeinsson (@asgeirkolbeins) on

Ósk úr Morgunþættinum á FM957 og Snorri, kærasti hennar, tilheyrðu Addams-fjölskyldunni.

Mortica & Gomez mætt í partý ✌️ #addamsfamily #bpblö15

A photo posted by Ósk Gunnarsdóttir 🎶 (@oskgunnars) on

Og Sverrir Bergmann mætti sem Bane og Lína Birgitta var Rauðhetta.

Bane in the hood 😂 #bpblö15 @linabirgittasig

A photo posted by Sverrir Bergmann (@sverrirbergmann) on

En hér má sjá sigurvegara kvöldsins.

Little Britain vann þetta àrið!! OfurHugi og Ástrós sem er sett með tvíbura à þriðjudaginn! #metnaður #bpblö15

A photo posted by Auðunn Blöndal (@audunnblondal) on

Auglýsing

læk

Instagram