Beverly Hills-stjörnur á Íslandi: „Bjóst aldrei við að heimsækja einn stærsta jökulhelli á Íslandi“

Leikararnir Tori Spelling og Ian Ziering eru stödd hér á landi. Þau eru þekktust fyrir hlutverk sín í þáttunum Beverly Hills 90210, sem naut gríðarlegra vinsælda á níunda áratug síðustu aldar.

Tori Spelling er búinn að birta nokkrar myndir af ferðalaginu á Instagram en eiginmaður hennar, Dean McDermott er með í för. „Aldrei í villtustu draumum mínum bjóst ég við að heimsækja einn stærsta jökulhelli á Íslandi. Og fara svo á vélsleða yfir jökulinn,“ sagði Tori í færslu sem hún birti með mynd frá Langjökli.

Hópurinn kom við í brugghúsi Steðja í Borgarfirði og var ekkert á móti því að sitja fyrir á myndum með bjórinn Kanzlarann í hönd

Beverly Hills stjörnur drekka líka Steðja.. Kanzlarinn Octoberfest kemur í Vínbúðina á morgun..Brugghús Steðja, Borgarfjörður Hills 311

Posted by Brugghús Steðja on Fimmtudagur, 21. september 2017

Ian Ziering, sem lék Steve Sanders í Beverly Hills, birti þessa mynd á Instagram í gær

Auglýsing

læk

Instagram