Blaðamaður Variety þekkir ekki Fóstbræður: Kallar Gussa nýliða

Kvikmyndavefurinn Variety fjallar um frábæran árangur Virgin Mountain, nýjustu kvikmyndar Dags Kára, á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín. Myndin kallast Fúsi á íslensku og í aðalhlutverkum eru Gunnar Jónsson og Ilmur Kristjánsdóttir.

Myndin hefur þegar verið seld til Brasilíu, Kólombíu, Noregs, Þýskalands, Austurríkis og fleiri landa.

Á vef Variety er Gunnar Jónsson, sem er oftast kallaður Gussi, sagður nýliði en það er ljóst að blaðamaðurinn Elsa Keslassy hefur aldrei horft á Fóstbræður, þar sem Gussi fór á kostum á árum áður.

Gagnrýnendur eru almennt ánægður með þessa nýjustu mynd DAgs Kára og er talað um að hún sé sú besta frá honum síðan hann sendi frá sér Nóa Albínóa.

Ef blaðamaður Variety er að lesa þetta viljum við bendi henni á eitt frábært atriði úr Fóstbræðrum þar sem Gussi fer á kostum:

Auglýsing

læk

Instagram