Borgarstjóri óskar eftir skýringum á pitsumálinu: „Það fauk hressilega í mig“

Dagur B. Eggertsson borgarstjór hefur óskað eftir skýringum frá Skóla- og frístundasviði á fréttum af stúlku sem fékk ekki að kaupa pitsusneið í Fellaskóla í gær. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Dags.

Fréttablaðið greindi frá því í morgun að ellefu ára stúlku hafi verið neitað um að taka þátt í pítsuveislu í Fellaskóla á öskudaginn þar sem hún er ekki í mataráskrift hjá Reykjavíkurborg.

Sjá einnig: Tölvan segir „nei“ í Fellaskóla, ellefu ára stelpa fékk ekki að kaupa pitsusneið

Stúlkan mætir ávallt með nesti í skólann en móðir hennar vildi gera á því undantekningu þar sem pitsur voru í boði í tilefni af hátíðahöldunum á öskudag.

„Ég skipti ekki oft skapi en viðurkenni það fauk hressilega í mig við að lesa þessa frétt í morgun. Svona gerir maður ekki,“ segir Dagur á Facebook.

Það hefur verið skýr sýn og stefna borgarinnar að engum sé vísað úr matarröðinni, hvorki vegna efnahags né annarra ástæðna. Þetta hefur líka ítrekað komið fram í upplýsingum úr skólunum að þannig sé á málum haldið.

Dagur segist taka þetta sérstaklega nærri sér því Fellaskóli hefur verið í stórsókn undanfarin ár. „Og ég er mjög stoltur af því starfi og árangri sem starfsfólk og stjórnendur, nemendur og fjölskyldur þeirra hafa skilað,“ segir hann.

„Við eigum að skapa samfélag fyrir alla og þar sem allir eru með. Það er sérstaklega mikilvægt í skólunum. Ef þetta er vafamál í einhvers huga þá eigum við að hnykkja á því. Ég óskaði í í morgun eftir formlega eftir skýringum á þessum fréttum frá Skóla- og frístundasviði.“

Auglýsing

læk

Instagram