Bundinn við staur og rassskelltur á almannafæri

Egill Ploder, einn af strákunum í vefþáttunum Áttan á mbl.is, var á dögunum bundinn við staur og rassskelltur á fallegum blíðviðrisdegi í Reykjavík.

Sjá einnig: Sjónvarpsþáttur plataði lögregluna í Kringluna

Þetta var refsing í Áttunni en Egill tapaði einhvers konar keppni í síðasta þætti. Myndband af refsingunni má sjá hér fyrir neðan. Það er ástæða til að vara viðkvæma við að horfa á það.

Kraftakarlinn Ari Gunn­ars­son var feng­in til þess að líma Eg­il við ljósastaur og rassskella hann þangað til hann var sárkvalinn.

Hér má sjá myndbandið af aðförunum.

Auglýsing

læk

Instagram