Creed-ábreiða Viðars eitt vinsælasta lag Noregs

Fótboltamaðurinn Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Vålerenga og markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar, sendi frá sér ábreiðu af laginu My Sacrifice með Creed í síðustu viku. Lagið er fáanlegt á iTunes og situr nú í 15. sæti vinsældarlista tónlistarveitunnar í Noregi.

Viðar sagði í viðtali á vef Vålerenga fyrir helgi að lagið henti röddinni sinni vel:

Ég er með frekar dimma rödd. Dýpri en þegar ég var yngri. Creed er frábær hljómsveit. Ég held að þetta sé allt í lagi hjá mér. Ég hlustaði á þetta nokkrum sinnum og þetta er í lagi.

Ábreiða Viðars er fyrir ofan stórsmellinn Chandelier með Siu en ofar á listanum má finna listamenn á borð við John Legend, Calvin Harris og Taylor Swift, sem er í efsta sæti með lagið Shake it off.

Viðar Örn gefur út lagið til styrktar Vålerenga og allur hagnaður rennur beint til élagsins.

Fylgdu Nútímanum á Facebook og þú missir ekki af neinu.

Auglýsing

læk

Instagram