Egill og Ofur-Gísli koma Bjögga Thor til varnar: Óheppilegt sjónarhorn frekar en gleymdir lappadagar

Óhætt er að segja að myndirnar sem breska dagblaðið Daily Mail birti í gær af fótboltagoðsögninni David Beckham og fjárfestinum Björgólfi Thor Guðmundssyni hafi brotið internetið.

Margir tjáðu sig um líkamsbyggingu Björgólfs á samfélagsmiðlum og þá sérstaklega um lappirnar á honum sem virðast á myndinni smáar í samanburði við efri hlutann.

Nútíminn leitaði til sérfræðinga sem vilja meina að skýringu megi rekja til óheppilegrar stærðar á stuttbuxum og vondu sjónarhorni.

Einkaþjálfarinn Egill Einarsson segir að stuttbuxur Björgólfs séu í sérstaklega vondri sídd. „Ég veit að hann tekur 200 kíló í bekk og það er útilokað án þess að vera með gott rassgat og góð læri. Ég held að þessar stuttbuxur séu að blekkja, þær eru í vondri sídd,“ segir Egill.

Ég væri til í að sjá hann í evrópskum þveng, þá hefði hann fengið að njóta sín betur.

Egill skellir einnig skuldinni á þann aðila sem tók myndina. „Sá sem tók þessa mynd þarf að skeina sér. Ef hún hefði verið tekin á hlið hefðu þessi læri fengið að njóta sín mun betur,“ bætir hann við.

Gísli Örn Reynisson eða Ofur-Gísli eins og hann kallar sig tekur í sama steng og Egill. „Ég held að þetta sé óheppilegt sjónahorn fyrir hann. Skrokkurinn á honum er óaðfinnanlegur að öllu öðru leyti en ég væri til í bjóða honum með mér á æfingu,“ segir Ofur-Gísli.

Myndina umtöluð má sjá hér að neðan

Auglýsing

læk

Instagram