Einn lést og níu slösuðust í hörðum árekstri á Vesturlandsvegi

Einn lést og níu slösuðust í hörðum árekstri tveggja bíla á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi, skammt frá Enni, á áttunda tímanum í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt. „Hinir slösuðu voru allir fluttir með sjúkrabifreiðum á slysadeild Landspítalans, en ekki er hægt að greina frá líðan þeirra að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni.

Vinnu á vettvangi er lokið og hefur Vesturlandsvegur verið opnaður á nýjan leik. Veginum var lokað á milli Þingvallavegar og Hvalfjarðarvegar í kjölfar slyssins og var hjáleið um Kjósarskarðsveg.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið.

Auglýsing

læk

Instagram